ÝmislegtPálína Fanney Guðmundsdóttir

Hæ hæ,
Um þarseinustu helgi vorum við Agnes, Höddi og Auður Jóna gríðarlega dugleg. Við fórum á toppinn á Esjunni - já, alveg upp á Þverfellshorn. Mjög gaman þar sem ég hafði tvisvar farið næstum því upp, en alltaf þurft að snúa við vegna slæms skyggnis eða hvassviðris.
Núna um helgina ákvað ég svo að skella mér austur. Datt þetta í hug svona um eitt leytið á fimmtudaginn í skólanum, hjólaði svo heim um tvöleytið og hoppaði upp í flugvél um fjögurleytið , algjör prakkari:) Það var rosalega gott að koma heim. Aðalmarkmið ferðarinnar var að borða mömmumat, eiga samverustundir með mömmu,pabba, Salnýju systur og hennar fjölskyldu og lesa slatta í erfðafræði. Einnig var auðvitað á listanum að heimsækja Hlyn og Hörpu og helst að hitta Erlu og Pálma líka, kíkja í sund og gönguferð, og þetta var allt saman gert. Ömmu og afa heimsókn er svo auðvitað möst í svona ferðum.
Tókst aldrei að hitta á tengdafólkið mitt reyndar - aldrei heima þegar ég kíkti við.
Komst að því í ferðinni að maður fær illt í magann ef maður borðar vanalega kjúkling og hakk til skiptis og svo allt í einu kjarngóðan mömmumat eins og kjöt í karrí... þoldi þessi skipti illa á fimmtudagskvöldið, en var orðin ansi sjóvuð á sunnudagskvöldið þegar ég borðaði lambalæri hjá ömmu og afa á héraðinu :)
Í dag er svo bara kominn mánudagur og ég kominn aftur í borgina. Það var ekkert svo erfitt að fara hingað aftur, vitandi það að það er stutt í jólapróf og í kjölfarið kemur jólafríið. Auk þess saknaði ég nú bara Jonnans smá meðan á þessari reisu stóð - getum auðvitað ekki farið saman í svona frí, hann fer líklega um næstu helgi!! agalega ósamstíga fólk hér á ferð.
Mál  málanna í dag er leikfimitími sem ég fer í á eftir - við Agnes erum að fara í prufutíma í Pilates og hlökkum mikið til - vonumst eftir miklum harðsperrum á morgunn :)

Eigið góðar stundir :)
Hilesen, Pálína.

Hress!Pálína Fanney Guðmundsdóttir

Jább, nú er ég hress og kát :) Var að senda ritgerð sem ég á að skila á morgunn, og ljúka við fyrirlestur sem er langt þangað til ég þarf að flytja. Er ekki alltaf gott að vera búinn að vinna sér aðeins í haginn - ég held það bara.
Annars er bara allt gott að frétta héðan úr kotinu. Búin að gera lítið annað en að læra í vikunni og klessast í sófanum á kvöldin. Horfði meira að segja á p.s. i love you á þriðjudagskvöldið... veit ekki alveg hvernig mér datt það í hug, vissi alveg að það myndi enda eins og þegar ég horfði á notebook um daginn - sat bara grátbólgin í stofusófanum þegar Jonni kom heim af kvöldvaktinni! Alveg agaleg með að grenja yfir svona myndum.
Já svo er bara ástand á fjármálum landans, ég er bara rosalega fegin núna að vera ekki með nein önnur lán en námslánin mín og hafa litla kaupþörf - hentar gríðarlega vel í svona árferði :)
Októberfest hjá háskólanum um helgina, spurning um að kíkja eitthvað á það. Annars stefnir bara í lærdóm og vonandi einhverja útiveru um helgina, held að það sem gleður mig mest þessa stundina sé sú staðreynd að það er spáð þurru veðri á laugardaginn svo ég sé fram á að geta verið úti án regnfata.
Jæja, farin í  labbitúr (í regnfötum notabene) og svo er það kvöldmaturinn... hugsa að einhverskonar samloka úr bónusbrauði verði fyrir valinu :D
Endilega kvittið.

Október mættur!Pálína Fanney Guðmundsdóttir

Hæhó,
Langar að blogga.... ætla að gera það :) hef bara hreinlega ekki gert það síðan sumarið 2007..... léleg!
Átti frábæran dag, fór til Grindavíkur á rústabjörgunaræfingu með félögum mínum í Gerpi sem lögðu það á sig að keyra í 10 tíma frá Neskaupstað til að taka þátt í æfingunni! Alltaf sama eljan þar.
Annars er bara allt mjög svo fínt af mér að frétta, þriðja árið í lífeindafræðinni er hafið og sumrinu eyddi ég á Neskaupstað í góðu yfirlæti. Vann á rannsóknarstofunni á spítalanum og bjó hjá mömmu og pabba. Í vor ætla ég svo að útskrifast með Bs-gráðu í lífeindfræði, og skella mér beint í mastersnám næsta haust :) frábært samt að hafa þessa gulrót næsta sumar, að fá gráðu og geta haldið útskriftarveislu!
Enn já, þetta var eiginlega bloggað fyrir Jónínu Hörpu sem ég hitti á æfingunni í dag :) hún var næstum því búin að kommenta á síðustu færslu um daginn, hélt hún væri um sumarið 2008 en ekki sumarið 2007 - ákvað þá að tími væri komin til að blogga allavega eina færslu eða hreinlega loka þessari síðu!

Jæja, ætla að fá mér kvöldmat og svo tekur við laugardagsnammiát og sjónvarpsgláp :)
Endilega kvittið ef þið dettið hingað inn :D

Yndislegt sumar :)Pálína Fanney Guðmundsdóttir

Sæl,
Ég er svo sátt við þetta sumar sem nú er senn á enda. Er búin að hafa það svo gott!
Í fyrsta lagi er sumarvinnan mín á spítalanum búin að vera mjög skemmtileg og oft á tíðum ÖGRANDI og KREFJANDI!
Í öðru lagi er veðrið búið að leika við okkur hér í höfuðborginni og ég er brún á handleggjunum - þegar maður er í innivinnu er maður ákaflega ánægður með það :D
Í þriðja lagi er ég búin að ferðast dálítið:
* Fór norður um hvítasunnuhelgina og var í sumarbústað með Jonna og fjölskyldunni og fór í fermingarveislu
* Fór á Snæfellsnesið einn laugardag í Júní - við keyrðum um það allt og skoðuðum t.d. Gerðuberg, Ölkeldu, Eldborg, Búðir, Lóndranga, Arnarstapa og mastrið á gufuskálum til að eitthvað sé nefnt!
* Í Júli brunuðum við í Þórsmörk og á leiðinni hittum við Erlu og Pálma. Síðan keyrðum við saman um Fjallabak nyrðra og syðra og var það mjög skemmtilegur rúntur - en dáldið langur fyrir minn smekk. Í næstu svona reisu væri ég til í að láta þau skilja mig eftir við rætur einhvers fjallsins og labba það meðan þau rúnta! ;) Í þessari ferð voru bara allir fótlama nema ég!
* Helgina eftir þessa reysu ákváðum við Jonni eftir vinnu á föstudeginum að það væri best að við skelltum okkur á Borgarfjörð Eystri og færum á Bræðslutónleikana - Enginn vissi fyrir víst að við værum að koma en ég hafði gefið það í skyn við Erlu fyrr um daginn og beðið hana að segja samt engum því þetta væri ekki ákveðið :Þ Þó þetta væri langt ferðalag þá borgaði það sig algjörlega því svipurinn á Hörpu þegar við birtumst í eldhúsinu í Sætúni var DÁSAMLEGUR :D Fjölskyldan í Sætúni og Erla og Pálmi fá kærar þakkir fyrir þessa helgi!!!
* Næsta helgi var Verslunarmannahelgin og þá var flogið í Egilsstaði og svo brunað heim í Fjörðinn fagra :) YNDISLEGT! Skemmti mér konunglega og fékk meira að segja að björgunarsveitanördast smá - það sem ég sakna þess. Síðan var keyrt suður ásamt Jonna, Evu og Sigurbjörgu.

Meðan ég skrifa þetta blogg er að bakast risastór marengsterta sem ég ætla með í vinnuna á miðvikudaginn því það er síðasti dagurinn minn á rannsókn í bili! Búið að vera frábært að fá að vera þarna í sumar og fylgjast með og læra. Hlakka til sumarvinnunnar næst sumar þegar ég verð ekki alveg jafn lítil og vitlaus og ég er núna - samt ennþá lítil og vitlaus! Við bekkjarsysturnar erum alltaf kallaðar "litlurnar" í vinnunni!

Eftir vinnu á miðvikudaginn á ég svo pantað flug heim og þar hyggst ég vera þangað til skólinn byrjar 27. ágúst. Ég ætla að fara í berjamó með Salnýju og Lilju og fara í fjallgöngur og sund, kíkja í Viðfjörð og kannski á kajak ef Pálmi nennir ;) Hlakka svo ëndalaust til!

Jæja, hafið það gott og njótið restinni af sumrinu!

Kveðja, Pálína.

Neskaupstaður :DPálína Fanney Guðmundsdóttir

Sæl,
Ég er á leiðinni heim! Á föstudaginn mun ég fljúga heim og eyða helginni á austurlandinu. Það helsta sem er á dagskrá er Gulllbrúðkaup ömmu og afa á laugardaginn :D búin að vera gift í 50 ár þessar elskur.
Einnig er á dagskrá að hitta allt frábæra fólkið sem er á Neskaupstað! og borða ægilega góðan mat hjá mömmu.
Annars var ég ein heima hérna í Reykjavík um helgina, Jonni fór austur á torfæru og mér var ekki boðið.... en helgin var alveg ægilega skemmtileg þrátt fyrir Jonnaleysi! Fór í langa línuskautaferð  með Evu um laugardalinn, tvisvar í sund, hjólaði úr laugardalnum og út á seltjarnarnes með Jóni Einari og svo hringinn í kringum það, setti niður sumarblóm og keypti sætan garðálf sem er með rassinn út í loftið og býður gesti velkomna, fór á ball með Evu og Nýdönsk..... já, þetta var allt mjög gaman!
Fram að helgi ætla ég að vinna og undirbúa mig fyrir helgina, það verður auðvitað ball í gullbrúðkaupinu og hverjir aðrir en við pabbi koma til greina til að spila?? ENGIR ;) tíhí!
Jæja, farin á línuskauta og svo í sund - of gott veður til að húka inni.

Bless í bili

Kláði og almennur pirringur!Pálína Fanney Guðmundsdóttir

Ég er að verða vitlaus á þessum pöddum hérna! Nú vakna ég með ný bit á hverjum morgni og meindýraeyðirinn fann ekkert nema nokkrar köngulær og smá skít hérna! Sagði okkur að taka til, sennilega væru köngulærnar að bíta mig.... ég er ekki alveg að kaupa þetta hjá honum, en annars eru þrifin hafin, erum einnig byrjuð að mála allt hérna og kítta meðfram öllu gólfinu og öllum gluggum í von um að hefta leið paddanna inn í íbúðina!
Annars langar mig langmest til að kaupa mér mína eigin íbúð í augnablikinu og flytja úr þessu gamla og úr sér gengna húsi! Því vantar svo viðhald, og það er ekkert á dagskrá á næstunni! Þannig ég er farin að liggja yfir fasteignauglýsingum á netinu í von um að finna eitthvað sem ég get keypt.
Þetta er svona það helsta, næstu dagar munu fara í það að vinna og koma svo heim og mála. Djöfull nenni ég þessu ekki!
Vonandi leikur sumarið betur við ykkyr hin ;)

Sjómannadagurinn.... er hann í dag segiði??Pálína Fanney Guðmundsdóttir

Sæl öll,
Mikið finnst mér undarlegt að vera ekki heima hjá mér á Neskuapstað þessa helgi! Hef bara ekkert fundið fyrir því að það sé sjómannadagshelgi, venjan er nú að alla vikuna fyrir þessa helgi sé ég á fullu að undirbúa kaffisöluna hjá slysó  og allir hinir í Gerpi að undir allt hitt og allur sunnudagurinn undanfarin 5 ár að minnsta kosti hefur farið í þetta kaffi! :D
Annars sit ég bara hérna ein heima hjá mér þessa stundina..... eða ein, eins ein og ég get verið hérna - sumarkomunni fylgdu nefnilega hin ýmsustu gæludýr á þessum bæ, já í fyrsta lagi er það ROTTAN í veggnum á baðinu, hún heitir Eva að ósk Evu vinkonu minnar ;) Nú, næst ber að nefna RAUÐMAURANA -Við Jonni vorum reyndar að reyna að stúta þeim áðan með gömlu og góðu húsráði, ætla að athuga í gluggana á morgunn hvernig tókst til. Að lokum eru það svo PÖDDURNAR sem dúkka alltaf upp annað slagið úr einu horninu á læriherberginu...... veit ekkert hvernig pöddur þetta eru, en þær eru allavega meinlausar, hafa vængi en virðast vera of heimskar til að nota þá :)
Einkunnirnar eru allar komnar í hús og þetta gekk bara allt saman mjög vel - endalust ánægð mig núna :)
Vinnan gengur líka bara vel, allavega eru þær voða duglegar að hrósa okkur nemunum konurnar sem vinna með okkur :) verð flesta daga að vinna frá 8 til 4, held að ég fái að vinna einhverjar 2 helgar í sumar og svo einhverja örfáa daga frá 8 til 8. Þannig ef einhver á lausa stund og vill leika við mig, þá er ég til eftir klukkan 4 á daginn og flestar helgar!
Er farin að sakna allra Norðfirðinganna sem fóru heim í sumar - það eru alveg ferlega fáir eftir eitthvað, hlakka líka endlaust til þegar Sigga kemur heim frá Suður- Ameríku.
Jámm og jæja, er að hugsa um að skreppa út í búð og kaupa restina í innflutnings og útskriftargjöfina hennar Evu minnar :) hún ætlar að vera svo ferlea væn að bjóða okkur Jonna og Jóni Kristni í grill í kveld - namm namm! Svo er ég að hugsa um að kíkja í sundlaugina og testa nýja bikiníið sem ég keypti mér í gær... best að rölta þangað á nýju skónum sem ég keypti einnig í gær :D

Hamingjuóskir að lokum, Eva ti hamingju með útskriftina um daginn og Salný mín, innilega til hamingju með ljósmóðurtitilinn sem þú mátt fara að bera eftir nokkra daga ;)

Veriði sæl í bili, hafið það gott og verið góð við hvort annað.

Sumarfríið langþráða að hefjast ;)Pálína Fanney Guðmundsdóttir

Ég er líka búin í prófum, ligga ligga lái! :D
Mikið er gott að þetta er búið í bili..... fór í síðasta prófið í morgunn og held það hafi bara gengið alveg ágætlega... sem og öll hin, á ekki von á falli í neinu að minnsta kosti ;)
Núna er planið að fara í klippingu og litun eftir svon a 20 mínútur, taka svo til í íbúðinni minn sem hefur verið verulega vanrækt síðan um miðjan Apríl, í fyrramálið byrja ég svo að vinna á spítalanum og annaðkvöld ætla ég að vera verulega full, því það er jú frí á fimmtudaginn! Svo er það vinna föstudaginn og síðan árshátíð hjá slysó á laugardaginn.... nú, næstu helgi ætla ég svo norður í sumarbústað að hitta mömmu og pabba og Salnýju og Co og síðan á sunnudaginn ætlar hann Freyr frændi minn að láta ferma sig og þá fer ég í veislu í Eyjafirðinum - eins og þið sjáið er nóg að gera á næstunni og fullt á planinu :D

En núna ætla ég að horfa á einn friends þátt og drífa mig svo í klipp og lit - á það svo sannarlega skilið eftir þessa törn :D

"Lífið er yndislegt" blogg :DPálína Fanney Guðmundsdóttir

Sæl,
Var að koma inn úr labbitúr, finnst fátt betra eftir hrikalega langan læridag en að skella mér í grasagarðinn í Laugardalnum og fá mér labbitúr með smá tónlist í eyrum ;) sérstaklega þegar veðrið er eins og það er í kvöld, hlýtt og notalegt vorveður, nóg að vera bara á lopapeysunni! Fékk yfir mig einhverja svona rosalega "lífið er yndislegt tilfinningu" í labbitúrnum! Var orðin svo leið á að læra áðan, en núna er ég alveg tilbúin til að vakna í fyrramálið, setja í ofurkonugírinn og klára þessa 14 læridaga sem eru eftir af önninni! Já, þið lásuð rétt, 15. maí labba ég út úr síðasta prófinu mínu :) er orðin svo spennt fyrir þessum degi! Er meira að segja búin að panta mér klippingu eftir prófið og alles :D Svo er það bara vinna 16. maí og próflokadjamm um kvöldið, því 17. maí er víst frídagur!
Annars finnst mér að sumarið sé að koma, krakkarni í næsta húsi eru búin að fá trampólínið sitt sett upp og á laugardaginn voru þau enn að hoppa þegar ég, þreytt námsmærin, fór að sofa um 11 leytið! og núna eru þau enn að hoppa... enda frídagur á morgunn.
Hef svo sem ekkert meira að segja, langaði bara til að deila "lífið er yndislegt tilfinningunni" með einhverjum, og þar sem Jonni er að vinna til 12 í kvöld þá urðuð þið fyrir valinu!
Þið sem eruð í prófum eins og ég, góðan próflestur! og þið sem eruð ekki í prófum skuluð njóta vorsins fyrir okkur hin :D Svo eru allir hjartanlega velkomnir í heimsókn til mín 15. maí, þá verð ég í OFUR góðu skapi!
Bless í bili!

1. APRÍL !!! :)Pálína Fanney Guðmundsdóttir

Sæl,
Er búin að dunda mér við ýmislegt síðan ég kom heim frá Akureyri.... spurning hvað ég man! Ég er til dæmis búin að fara í matarboð til Evu, bjóða Jóni Kristni í mat, og um seinusut helgi var árshátíð hjá nemendafélaginu mínu sem var fámenn og en mjög góðmenn! Takk allir fyrir frábæran dag ;)
Er einnig búin að fara í Borgarnes og heimsækja tengdafólkið mitt, bjóða Pálma, Erlu, Jóni Einari og Bigga í mat, fara í Billiard og bíó og svo er ég auðvitað búin að læra alveg helling!
Seinni part gærdagsins ákváðum við Jón Kristinn að gerast menningarleg og skelltum okkur í Bláa lónið í ógeðisveðri, en það var samt notalegt, svona eftir að við fundum út hvar blessað lónið var almennilega heitt!! Búið að breyta þessu öllu síðan við fórum seinast í byrjun Nóvember! Eftir lónið var brunað aftur í bæinn og við fengum okkur geðveikt pasta á Kaffi Sólon - mæli sko með því :) *slurp*
Annars hefur helgin farið í að læra undir tölfræðipróf sem er á þriðjudaginn, háskólinn fer ekkert í frí fyrr en þá og er ekki um að gera að skella á prófi svona eftir helgina sem allir aðrir skólar fara í frí fyrir! Er samt ekki stressuð fyrir þessu prófi.... vona bara að það gangi jafn vel og ég held það muni ganga, finnst ég bara vera orðin ansi flink í þessu efni!
Á eftir er matur hjá tengdamömmu og Garðari - býð spennt eftir að sjá hvað verður boðið upp á.
En á miðvikudaginn gerist svolítið langþráð! Við skötuhjúin fljúgum HEIM :D Mikið verður það nú gott! Ætla nú samt ekki að skilja skóladótið eftir í borginni.... en það væri samt bara æði að gleyma því bara hérna! ;) Heima ætla ég að hitta fólkið mitt, fara í fermingarveislu og borða á mig gat, borða mömmumat, fara á skíði, labba stóra hringinn, fara á ball með Outloud, borða páskaegg, spila og læra - þetta verður bara yndislegt!

Sé ykkur eflaust flest heima á Neskaupstað um Páskana :D endilega kvittið ef þið skoðið þetta!
Núna ætla ég í labbitúr og þar sem Jonni er að fá sér blund (eitthvað þreyttur eftir að hafa eytt gærdeginum og nóttinni hjá Finni bróður!! höhömm! ) get ég ekki beðið eftir að koma heim og hrekkja hann ægilega! Verð að finna upp á einhverju góðu í göngutúrnum :D tíhí!

Bless í bili!

Aðalvalmynd

Auglýsing